Lögfræðingar Andrésar, hertogans af York, vilja yfirheyra sálfræðig sem meðhöndlaði, Virginiu Giuffre, konuna sem sakaði hann um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi, og fullyrtu að hún gæti verið haldin fölskum minningum.
Giuffre hefur sakað Andrés um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi þegar hún var aðeins 17 ára gömul.
Málið tengist fjölda ásakana um kynferðisofbeldi gegn ungum stúlkum í tengslum við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein sem á að hafa greitt Giuffre hálfa milljón bandaríkjadala árið 2009 gegn því að hún myndi ekki tilkynna brot gegn henni til lögreglu.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að dómsskjöl sýni að lögfræðingarnir vilji að eiginmaður Virginia Giuffre, Robert, og sálfræðingur hennar, verði eiðsvarinn.
Dómstóll í Bandaríkjunum hafnaði beiðni Andrésar Bretaprins um að vísa frá einkamáli Virginíu Giuffre gegn honum en lögfræðingar Andrésar sögðu fyrir dómi að málinu ætti að vísa frá með vísan til samningsins sem Giuffre gerði við Epstein, en dómari í New York úrskurðaði að málið skyldi taka fyrir.
Dómarinn, Lewis Kaplan, sem fer með málið í New York hefur farið fram á að lögfræðingar taki sönnunargögn vitna fyrir 14. júlí og gaf út að réttarhöld gætu farið fram fyrir dómstólum síðar á þessu ári.