Leiðtogi verkamannaflokksins í Bretlandi, Sir Keir Starmer, sagði í dag að augljóst væri að Boris Johnson, forsætisráðherra, hefði brotið lög með því að hafa haldið veislur í Downingstæti er útgöngubann var í gildi þar í landi síðasta vor.
Sue Gary, sérstakur saksóknari, vinnur nú að skýrslu sem ætti að koma út bráðlega um sóttvarnabrotin í Downingstræti. Segir Starmer að hann þurfi ekki að bíða eftir niðurstöðum skýrslunnar til þess að vita að Johnson hafi brotið sóttvarnarlög.
„Staðreyndirnar tala sínu máli og landið hefur gert upp hug sinn,“ sagði hann og bætti við að það væri „augljóst hvað gerðist“.
Starmer sagði augljóst að það væri stjórnarandstöðunni í hag ef Johnson segði af sér en sagði að nú væri afsögn hans allri þjóðinni í hag og bætti við að forsætisráðherrann væri búinn að missa öll siðferðisleg völd.
Johnson viðurkenndi á miðvikudag í síðustu viku, í tilsvörum sínum gagnvart þinginu, að hann hefði verið viðstaddur um hundrað manna veislu í Downingstræti 10 þegar útgöngubann var í gildi fyrir almenning í landinu.
Johnson baðst í leiðinni afsökunar á að hafa tekið þátt í veisluhöldunum, sem fóru fram í garði Downingstrætis, og sagðist skilja reiði almennings yfir því. Síðan þá hafa frásagnir af fleiri veisluhöldum Downingstræti komið upp á yfirborðið.
Eins og breska blaðið Telegraph greindi frá fyrst miðla voru haldin tvö teiti í Downingstræti 10 16. apríl síðastliðinn. Útför Fillipusar prins var haldin daginn eftir. og sat Elísabet Bretlandsdrottning ein í útför eiginmanns síns vegna samkomutakmarkana. Gleðskapurinn í forsætisráðuneytinu entist fram á rauðamorgun.
Á meðal háttsettra þingmanna í Íhaldsflokknum sem kallað hafa eftir afsögn Johnsons eru Douglas Ross, leiðtogi íhaldsmanna í Skotlandi, Wiliam Wragg, Caroline Nokes og Roger Gale en alls hafa sex þingmenn nú kallað eftir afsögn Johnsons.