Tveir unglingar voru handteknir á Englandi í gærkvöldi vegna rannsóknar á gíslatöku í sýnagógu í Texas í Bandaríkjunum á laugardag.
Hinn breski Malis Faisal Akram var skotinn til bana af lögreglu á vettvangi. Hann kom til Bandaríkjanna í gegnum JFK-flugvöllinn í New York fyrir um tveimur vikum. Er útlit fyrir að hann hafi keypt sér vopn eftir að hann kom til Bandaríkjanna. Engin sprengiefni fundust á honum og átti hann enga afbrotasögu.
Árásin á sýnagóguna, Congregation Beth Israel í Dallas, hófst klukkan 11 að staðartíma. Lögreglan var kölluð út stuttu síðar.
Akram komst, vopnaður byssu, inn í sýnagóguna undir fölsku flaggi en hann sagðist vera heimilislaus. Akram tók fjóra gísla, þeirra á meðal var rabbíni sýnagógunnar. Akram hélt gíslunum í rúmar tíu klukkustundir en enginn þeirra særðist í árás Akrams.
Með athæfi sínu ætlaði Akram að krefjast þess að Aafia Siddiqui, pakistanskri taugavísindakonu sem afplánar nú 86 ára fangelsisdóm í Texas, yrði sleppt. Fangelsið sem Siddiqui situr í er í um 32 kílómetra fjarlægð frá sýnagógunni sem Akram réðst á.
Lögreglan í Manchester greindi frá handtöku unglinganna í gær og sagði að hún hefði verið framkvæmd „sem hluti af yfirstandandi rannsókn á árásinni“. Þá eru unglingarnir nú yfirheyrðir.
Upplýsingar um kyn þeirra og aldur hafa ekki verið gefnar upp. Unglingarnir voru handteknir í suðurhluta Manchester. Lögreglan þar á í samstarfi við bandarísk lögregluyfirvöld vegna málsins.
Gulbar, bróðir Akrams, tilkynnti opinberlega um dauða hans í yfirlýsingu á Facebook-síðu múslimasamfélagsins í Blackburn. Bróðirinn bað þolendur árásarinnar afsökunar og sagði að Akram hefði þjáðst af andlegum veikindum.
„Það ætti alltaf að fordæma ofbeldi gegn fólki, sama hvort það beinist gegn gyðingum, kristnum eða múslimum,“ sagði Gulbar.