Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, segir endalok faraldurs kórónuveiru kunna að vera í augsýn í Evrópu þar sem faraldurinn hafi þróast yfir í annað ástand með tilkomu ómíkron-afbrigðisins.
Að mati stofnunarinnar gætu um sex af hverju tíu Evrópubúum hafa smitast í marsmánuði, sem myndi tákna endalok faraldursins.
„Það er mögulegt að faraldurinn á svæðinu [Evrópu] sé að nálgast einhvers konar endastöð,“ hefur fréttaveitan AFP-eftir Hans Kluge, yfirmanni Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Kluge segir líklegt að þegar núverandi bylgju sé lokið muni taka við rólegir mánuðir þar sem útbreitt ónæmi haldi veirunni í skefjum. Hins vegar kunni Covid-19 að snúa aftur í lok árs en þá í annarri mynd og ekki endilega sem heimsfaraldur.
Síðustu vikur hafa nokkur ríki innan Evrópu tilkynnt fyrirætlanir um afléttingu takmarkana vegna faraldursins í ljósi vægra veikinda þeirra sem smitast af ómíkron-afbrigðinu. Þar á meðal Færeyjar, Írland og Bretland.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítalans, sögðust í aðsendri grein á visir.is ætla að taka afléttingar takmarkana til skoðunar „með hliðsjón af skynsemi og öryggi“.