Myndbandsupptaka af manni að beita maka sinn ofbeldi, sem fer nú eins og eldur í sinu um kínverska samfélagsmiðla, hefur endurvakið umræður þar í landi um hvernig refsa eigi heimilisofbeldismönnum. Þykja viðbrögð lögreglunnar við málinu einnig skammarverð og vöktu þau upp mikla reiði.
Í síðustu viku fór myndbandsupptaka úr heimaeftirlitsmyndavél í dreifingu á kínverskum samfélagsmiðlum þar sem maður sést ganga í skrokk á eiginkonu sinni á heimili þeirra í boginni Xi'an í Kína þar sem útgöngubann hefur verið í gildi vegna Covid-19. Á myndskeiðinu sést maðurinn ítrekað lemja konuna á meðan að barn fylgist með einungis nokkrum metrum frá.
Ættingjar og samstarfsfélagar konunnar birtu upptökuna á samfélagsmiðlum og var myndefnið orðið umfjöllunarefni kínverskra fjölmiðla skömmu síðar.
Það voru þó ekki síður viðbrögð lögreglunnar sem vöktu upp sterk viðbrögð meðal netverja en í yfirlýsingu hennar sagði að átök höfðu brotist út meðal hjónanna eftir „öfgafulla orðanotkun og gjörðir“ konunnar. Kom þar einnig fram að lögregluþjónarnir hefðu „gagnrýnt og upplýst“ konuna.
Manninum var í kjölfarið haldið af lögreglu í fimm daga en var síðan sleppt án ákæru.
„Það er engin leið að reiða sig á lögin til að vernda mann þegar eina sem þeir gera er að gagnrýna fórnarlömbin,“ sagði í einum ummælunum á samfélagsmiðlum.
Samkvæmt kínverskum lögum um heimilisofbeldi, sem samþykkt voru árið 2016, er einungis hægt að halda ofbeldismönnunum í gæsluvarðhaldi í 20 daga. Ekki er hægt að fara fram á harðari refsingu nema hægt sé að sýna fram á alvarlega áverka eða glæpsamlegan ásetning.
Miklar áhyggjur hafa einnig verið uppi varðandi ný skilnaðarlög í Kína sem kveða á um að hjón sem óska eftir skilnaði verði að verja 30 dögum í að íhuga þá skoðun saman. Eru lögin talin gera þeim erfiðara fyrir sem vilja yfirgefa ofbeldisfullt hjónaband.
Samkvæmt könnun sem framkvæmd var árið 2013 hefur fjórðungur giftra kvenna í Kína upplifað heimilisofbeldi.