Algjör óvissa virðist nú ríkja um það hvenær skýrsla Sue Gray, sérstaks saksóknara sem rannsakar veisluhöld í Downingstræti 10, verður birt. Niðurstöðu var að vænta í þessari viku en eftir að lögregla hóf sjálfstæða rannsókn á mögulegum brotum á sóttvarnareglum í vikunni flæktust málin. BBC greinir frá.
Í dag sendi Lundúnalögreglan svo frá sér yfirlýsingu þar sem kom að farið hefði verið þess á leit við Gray að hún takmarkaði þær upplýsingar sem gerðar yrðu opinberar í skýrslu hennar á meðan rannsókn lögreglunnar stæði yfir. Er það gert til að koma í veg fyrir mögulega hlutdrægni.
Yfirlýsing lögreglu kom mörgum á skrifstofu ríkisstjórnarinnar á óvart, þar sem skýrslunnar hefur verið beðið. Forsætisráðherrastóllinn gæti verið í húfi fyrir Boris Johnson en það veltur á niðurstöðum skýrslunnar hvort nokkrir þingmenn Íhaldsflokksins leggja fram vantrauststillögu á hann eða ekki.
Lögreglan tekur fyrir að gerð hafi verið gerð krafa um að birtingu skýrslunnar yrði frestað. Þá hafi ekki verið farið fram á neinar takmarkanir á birtingum upplýsinga um þær veislur sem lögreglan er ekki með til rannsóknar. En svo virðist sem lögregla telji að ekki hafi brot á sóttvarnareglum átt sér stað í þeim öllum.
Ekki liggur fyrir hvenær lögregla lýkur sinni rannsókn og því er mjög óljóst hvaða upplýsingar verður hægt að birta í skýrslu Gray. Það gæti jafnvel farið svo að skýrslan yrði ekki birt.