Fæðingu kvenkyns nashyrningakálfs var fagnað 18. janúar í Amneville dýragarðinum í Austur-Frakklandi.
Kálfinn bar nashyrningskýrin Yoruba, og vó kálfurinn um fimmtíu kíló við burð. Í dag vegur hún 84 kíló og er „við hestaheilsu“ samkvæmt upplýsingum frá dýragarðinum.