Níu fórust eftir glæfraakstur

Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að þar hafi menn ekki …
Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að þar hafi menn ekki séð jafn mikið mannfall vegna umferðarslyss áður. AFP

Níu létust í Las Vegas í Bandaríkjunum í gærkvöldi þegar bíll fór yfir gegn rauðu ljósi og klessti á fimm önnur ökutæki.

Auk þess er einn alvarlega slasaður á spítala eftir áreksturinn.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að þar hafi menn ekki séð jafn mikið mannfall vegna umferðarslyss áður.

Enn fremur kom fram að um klukkan þrjú að staðartíma hafi sportbíll komið á mikilli ferð og farið yfir gegnt rauðu ljósi.

Í framhaldinu hafi skapast mikið öngþveiti þegar sportbíllinn klessti á sex bifreiðar en í þeim voru alls 15 manns.

Fólkið sem lést var allt frá ungmennum og til fólks á miðjum aldri en á meðal þeirra sem létust voru ökumaður og farþegi sportbílsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert