Drengurinn sem féll í brunn í Marokkó á þriðjudag er látinn.
BBC greinir frá þessu.
Björgunaraðilar náðu í lík drengsins í kvöld en alls var Rayan, drengurinn sem um ræðir, fastur í fjóra daga.
Rayan féll um 32 metra ofan í brunninn skammt frá heimili sínu í þorpinu Ighrane í héraðinu Chefchaouen.
Björgunaraðgerðir gengu hægt þar sem hætta var á að jarðvegurinn á svæðinu gæfi sig.