Stjórnvöld Úkraínu og aðskilnaðarsinnar studdir af Rússum deila um hvor ber ábyrgð á skotum og sprengingum í austurhluta Úkraínu í morgun. Atburðirnir eiga sér stað á sama tíma og Bandaríkin hafa talið Rússa leita að átyllu til innrásar í Úkraínu.
Átök hafa staðið yfir í austurhluta Úkraínu með hléum frá því Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014 en átök morgunsins benda til þess að auknar líkur séu á innrás Rússa.
Úkraínumenn segja að hersveitir studdar af Rússum hafi skotið að leikskóla í þorpinu Stanytsia-Luganska og að tveir óbreyttir borgarar séu særðir.
Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði að þorpið hefði orðið illa úti eftir sprengingar en minntist ekkert á meiðsl eða mannfall. Hann fordæmdi árásirnar og hvatti aðrar þjóðir til að gera slíkt hið sama.
Kuleba benti á að sprengingarnar væru brot á Minsk-sáttmálanum og vísar þá til samkomulags sem náðist árið 2014 og átti að binda enda á átök í Úkraínu.
Rússneskar fréttaveitur greindu hins vegar frá því að hersveitir hliðhollar þeim sökuðu Úkraínuher um að auka spennuna á svæðinu og að þarlendar hersveitir stæðu fyrir þeim.
Dimitrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, sagðist hafa áhyggjur af ástandinu og hvatti vestræn ríki til að vara stjórnvöld í Kænugarði við frekari árásum.