Vladimír Pútín forseti Rússlands hefur skrifað undir viðurkenningu á sjálfstæði tveggja svæða aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu.
Aðskilnaðarsinnarnir hafa verið studdir leynt og ljóst af rússneskum stjórnvöldum frá því þau réðust þangað inn árið 2014.
Fyrr í dag óskuðu leiðtogar beggja svæðanna eftir sjálfstæðisviðurkenningu af hálfu Rússlands.
Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins sagði einnig í dag að sambandið myndi setja af stað ferli til að beita refsiaðgerðum gegn Rússum, ef Pútín viðurkenndi sjálfstæði svæðanna.
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands var á miðjum blaðamannafundi um afléttingu takmarkana, í beinni sjónvarpsútsendingu, þegar tíðindin bárust af ákvörðun Pútíns.
Gerði hann hlé á svari sínu til blaðamanns og greindi viðstöddum frá því sem gerst hafði.
„Þetta er skýrt brot á alþjóðalögum,“ bætti hann við og benti á að í þessu fælist slæmur fyrirboði.
„Þetta er enn eitt merkið um að hlutirnir séu á leið í ranga átt í Úkraínu,“ sagði Johnson.
Bretland muni þó halda áfram að standa þétt við bakið á Úkraínumönnum, meðal annars með útflutningi hergagna í varnarskyni.
Pútín fundaði í dag með öryggisráði sínu, utan hefðbundinnar dagskrár, en í ráðinu koma saman hæst settu embættismenn landsins í varnar- og öryggismálum.
Héldu margir þeirra innblásnar ræður á fundinum þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við að sjálfstæði svæðanna yrði viðurkennt.
„Ég hef heyrt skoðanir ykkar. Ákvörðunin verður tekin í dag,“ sagði Pútín.
Á fundinum sagði hann einnig að ógn vofði yfir Moskvu, sem felist í spennunni á milli Rússlands og Vesturlanda vegna Úkraínu.
„Notkun á Úkraínu, sem tóls til að eiga í ágreiningi við land okkar, skapar alvarlega og mjög stóra ógn gagnvart okkur,“ sagði forsetinn og bætti við að í forgangi í sínum huga væri öryggi, en ekki átök.
Enn fremur sagði hann engar horfur á því að hægt væri að framfylgja friðarsáttmálanum sem gerður var árið 2015. Sáttmálanum var ætlað að binda enda á átök úkraínska hersins og aðskilnaðarsinnanna í austurhluta landsins.