Rússneski forsetinn Vladimír Pútín segist ætla að taka ákvörðun í dag, um hvort hann muni viðurkenna sjálfstæði tveggja svæða aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu.
Aðskilnaðarsinnarnir njóta leynt og ljóst stuðnings Rússa en fyrr í dag óskuðu leiðtogar beggja svæðanna eftir sjálfstæðisviðurkenningu af hálfu Rússlands.
Ummæli forsetans féllu í lok fundar hans með rússneska öryggisráðsins rétt í þessu. Fundurinn var haldinn utan hefðbundinnar dagskrár, en í öryggisráðinu koma saman hæst settu embættismenn landsins í varnar- og öryggismálum.
Héldu margir þeirra innblásnar ræður á fundinum þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við að sjálfstæði svæðanna yrði viðurkennt.
„Ég hef heyrt skoðanir ykkar. Ákvörðunin verður tekin í dag,“ sagði Pútín.
Á fundinum sagði hann einnig að ógn vofði yfir Moskvu, sem felist í spennunni á milli Rússlands og Vesturlanda vegna Úkraínu.
„Notkun á Úkraínu, sem tóls til að eiga í ágreiningi við land okkar, skapar alvarlega og mjög stóra ógn gagnvart okkur,“ sagði forsetinn og bætti við að í forgangi í sínum huga væri öryggi, en ekki átök.
Enn fremur sagði hann engar horfur á því að hægt væri að framfylgja friðarsáttmálanum sem gerður var árið 2015. Sáttmálanum var ætlað að binda enda á átök úkraínska hersins og aðskilnaðarsinnanna í austurhluta landsins.