Stjórnvöld í Kasakstan hafa neitað beiðni Rússa um að hermenn þeirra gangi til liðs við þá og taki þátt í innrás Rússa í Úkraínu. Kasakar hafa verið nánir bandamenn Rússlands.
NBC News greinir frá.
Að auki sagði fyrrum Sovétlýðveldið að það viðurkenndi ekki sjálfstæði þeirra tveggja svæða í austurhluta Úkraínu sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti gerði í vikunni.
Þjóðaröryggisráð Bandaríkjanna fagnar yfirlýsingu Kasaka.