Rússneskar hersveitir eru komnar inn í Kharkiv, næststærstu borg Úkraínu, og hafa fregnir borist af því að til átaka hafi komið á milli þeirra og hers heimamanna.
Borgin er í norðausturhluta landsins og hvetja yfirvöld almenning til að halda sig innandyra.
„Ekki fara úr öruggu skjóli. Úkraínuher vinnur að upprætingu óvinarins,“ skrifaði Oleg Sinegubov, sem fer fyrir héraðsstjórn á svæðinu, á Facebook.
Fyrr nótt lést kona þegar eldflaug hæfði íbúðablokk í borginni og eru nokkrir særðir eftir atvikið.
BBC birtir myndskeið sem sögð er sýna rússneskt herlið í borginni en vert er að taka fram að á vef BBC kemur fram að ekki hafi fengist staðfest að svo sé:
Russian forces pushing into Kharkiv pic.twitter.com/XxV2ah7SQZ
— OSINTtechnical (@Osinttechnical) February 27, 2022