Úkraínsku hermennirnir sem sögðu rússnesku herskipi að fara til fjandans, þar sem þeir stóðu vörð á Snákaeyju í Svartahafi, eru á lífi.
Frá þessu greinir úkraínski sjóherinn í tilkynningu og segir hermennina í haldi Rússa.
Sjóherinn krefst þess um leið að hermennirnir verði látnir lausir tafarlaust.
Áður var hermt að hermennirnir þrettán hefðu neitað að gefast upp fyrir rússneskum hermönnum sem þangað komu á skipi.
Þeir hefðu staðið á sínu og verið drepnir af rússnesku hersveitinni í kjölfarið.
“Russian warship, go fuck yourself.”
— Nicholas A. Christakis (@NAChristakis) February 25, 2022
And then they were all killed. https://t.co/PxSuYczoit