Ísland lánaði flugvél til að aðstoða Úkraínu

Harpan í úkraínsku fánalitunum.
Harpan í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fraktflutningavél á vegum íslenskra stjórnvalda flutti búnað til notkunar í Úkraínu í nótt. Flogið var frá Slóveníu í samvinnu við yfirvöld þar í landi, til áfangastaðar nálægt landamærum Úkraínu.

Frá þessu greinir utanríkisráðuneytið í tilkynningu.

Bent er á að á síðustu dögum hafi borist ákall um aðstoð frá Úkraínu vegna neyðarástands í landinu í kjölfar innrásar rússneska hersins. Beiðni frá úkraínskum stjórnvöldum hafi meðal annars borist til Íslands.

Óskað hafi verið eftir ýmiss konar aðstoð, hergögnum, hlífðarbúnaði, hjúkrunarvörum og fleiru.

„Vilji íslenskra stjórnvalda hefur staðið mjög eindregið til þess að leggja úkraínsku þjóðinni lið, en eðli máls samkvæmt hefur Ísland ekki yfir að ráða hergögnum eða sérhæfðum búnaði sem mest þörf er talin á við þær aðstæður sem þar eru uppi nú,“ segir í tilkynningunni.

Leigð frá Atlanta

Tekið er fram að ákveðið hafi verið að leggja til not af fraktflugvél sem tekin var á leigu af flugfélaginu Atlanta, en ákaflega brýn þörf er sögð á slíku liðsinni.

„Heppnaðist framkvæmdin í alla staði vel og verður búnaðinum sem var um borð komið í dreifingu til þeirra sem á þurfa að halda. Þá hefur Ísland svarað kalli Úkraínu um mannúðaraðstoð með því að heita einnar milljón evra framlagi til alþjóðlegs mannúðarstarfs.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert