Segir Rússa vilja semja við Úkraínu

Vladimir Medinskí í Hvíta Rússlandi í morgun.
Vladimir Medinskí í Hvíta Rússlandi í morgun. AFP

Rússar vilja ná samkomulagi við Úkraínu og binda enda á deilu ríkjanna, að sögn rússnesks samningamanns.

Innrás Rússa í Úkraínu hefur núna staðið yfir í fimm daga.

„Það er engin spurning að það þjónar okkar hagsmunum að ná einhvers konar samkomulagi eins fljótt og mögulegt er,” sagði Vladimir Medinskí, aðstoðarmaður forsetans Vladimírs Pútíns, í sjónvarpsviðtali.

Hann er staddur í Hvíta-Rússlandi þar sem Úkraínumenn og Rússar ætla að ræðast við.

Hann bætti við að hann ætti von á því að viðræðurnar hefjist um hádegi að staðartíma, eða um níuleytið að íslenskum tíma.

Hersveitir Rússa yfirgefi Úkraínu

Samninganefnd Úkraínu krefst þess að vopnahlé taki gildi þegar í stað og að hersveitir Rússa yfirgefi landið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert