Rússneskar hersveitir hafa náð á sitt vald Saporisjía-orkuverinu, stærsta kjarnorkuveri í Evrópu, samkvæmt úkraínskum stjórnvöldum.
Fréttastofa Reuters hefur eftir Úkraínumönnum á svæðinu að starfsfólk sem sér um rekstur orkuversins muni áfram sinna því og fylgjast með að öryggis sé gætt.
Eldur kviknaði í kjarnorkuverinu í nótt eftir sprengjuárás Rússa. Til tókst að ráða niðurlögum eldsins snemma í morgun.
Eftirlitsstofnanir í Úkraínu sem sinna geislavörnum hafa gefið út að ekki séu nein merki um leka frá kjarnorkuverinu.