Segjast hafa náð herflugvelli aftur frá Rússum

Gervihnattamynd af herflugvellinum sem tekin var 24. febrúar.
Gervihnattamynd af herflugvellinum sem tekin var 24. febrúar. AFP

Úkraínski herinn kveðst hafa náð Míkólaív-herflugvellinum aftur á sitt vald úr klóm Rússa, en flugvöllurinn liggur fyrir utan samnefnda borg, vestur af borginni Kerson við suðurströnd Úkraínu.

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Marco Rubio bendir á að eitt sé að taka yfirráðin á svæði, annað að halda þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert