Halda friðarviðræður aftur á mánudag

Kona eldar mat fyrir úkraínska hermenn nærri Kænugarði. Innrásin hófst …
Kona eldar mat fyrir úkraínska hermenn nærri Kænugarði. Innrásin hófst 24. febrúar. AFP

Þriðja lota friðarviðræðna verður haldin á mánudag.

Frá þessu greinir Davíd Arakamía, einn sendifulltrúa í úkraínsku samninganefndinni, í stuttri yfirlýsingu á Facebook.

Sendifulltrúi myrtur

Annarri lotu viðræðanna lauk á fimmtudag, en sú fyrsta var haldin á mánudag.

Greint var frá því í dag að Den­is Kírev, einn sendifulltrúa úr samninganefnd Úkraínumanna, hefði verið myrtur af úkraínsku öryggissveitunum SBU.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert