Greiðslukortarisarnir Visa og Mastercard hafa tilkynnt um stöðvun starfsemi sinnar í Rússlandi. Mastercard vísaði til þess að vegna „fordæmalausrar stöðu yfirstandandi átaka og óvissu um efnahagslegt umhverfi“ hefði fyrirtækið ákveðið að hætta þjónustu sinni í Rússlandi.
Visa sagði að það hefði hafið vinnu við það með viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum í Rússlandi að hætta öllum greiðslum með Visa á næstu dögum.