Faðir, móðir og barn létust í sprengjuárás

Breitt var yfir þau látnu eftir árásina í dag. Ferðataska …
Breitt var yfir þau látnu eftir árásina í dag. Ferðataska föðursins stendur enn. AFP

Gulir skólabílar bíða í röðum á götu í Irpín, úthverfi Kænugarðs, og bíða eftir að færa Úkraínumenn í burtu frá heimilum sínum.

Svo byrja sprengjurnar að falla.

Þannig lýsir fréttaritari Wall Street Journal sínum sunnudegi í Úkraínu.

Náðu árásinni á myndskeið

Faðir, móðir, og barn þeirra, sem voru á götu úti með ferðatöskur og búin til brottfarar, létu lífið í þessari árás Rússa á hverfi sem litið er á sem mikilvægt hlið inn í Kænugarð.

Ekki er ljóst hversu margir aðrir létust.

Fréttamenn New York Times voru einnig á vettvangi og náðu á myndskeið þegar sprengjurnar féllu í dag:

Lynsey Addario, blaðamaður New York Times, tók svo myndir af hörmulegum afleiðingum árásarinnar:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert