Ásakanir um þróun efnavopna

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í dag að beiðni Rússa. Tilefnið …
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í dag að beiðni Rússa. Tilefnið voru ásakanir um mögulega framleiðslu efnavopna í Úkraínu. AFP

Rússar hófu innrás í Úkraínu fyrir 15 dögum. Í nótt réðust þeir inn á ný svæði með loftárásum á borgirnar Dnípró, Ívanó-Frankívsk og Lútsk. Árásin á Lútsk markar ákveðin tímamót þar sem Rússar hafa ekki áður ráðist á borg jafn vestarlega í landinu.

Rússar þrengja enn að Kænugarði og eru nú hersveitir þeirra í útjaðri borgarinnar, bæði norður og vestur af höfuðborgarinni. Úkraínski herinn segir að nokkur íbúðahverfi hafi orðið fyrir hörðum sprengjuárásum. Þrjár aðrar borgir í landinu eru jafnframt í herkví.

Staðfest hefur verið að þriðji háttsetti rússneski hershöfðinginn hafi verið felldur af Úkraínumönnum.

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, segir að ráðist hafi verið á trukka sem fluttu matvæli, lyf og önnur hjálpargögn til borgarinnar Maríupol í suðurhluta landsins, en ástandið í borginni er eitt það versta í stríðinu. Segir borgarstjóri Maríupol að stórskotaárásir séu gerðar á borgina á hverjum hálftíma og að um 1.200 manns hafi þegar látist. Borgin hefur verið án vatns og rafmagns í ellefu daga.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt neyðarfund í dag að beiðni rússneskra stjórnvalda. Tilefni fundarins voru ásakanir um mögulega framleiðslu efnavopna í Úkraínu. 

Volodimír Selenskí forseti Úkraínu hefur þó þvertekið fyrir það að verið sé að þróa efnavopn eða annars konar vopn sem gætu leitt til gjöreyðingar.

Ráðamenn í vest­ræn­um ríkj­um ótt­ast nú að Rúss­ar séu að beita hernaðarbragði þar sem þeir saka and­stæðinga sína um að þróa sýkla- og efna­vopn, svo þeir geti lagt grunn að notk­un þeirra í Úkraínu. Hafa Rúss­ar áður verið sakaðir um að gera þetta í Sýr­land

Fylgst verður með gangi mála hér að neðan.

Björgunaraðilar í Dnípró borg eftir loftárásir næturinnar.
Björgunaraðilar í Dnípró borg eftir loftárásir næturinnar. AFP/ State Emergency Service of Ukraine
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert