Skotárás gerð á sjúkrahús

Skotbardagar í Mykolaiv hafa verið mannskæðir síðustu daga.
Skotbardagar í Mykolaiv hafa verið mannskæðir síðustu daga. AFP

Skotárásir voru gerðar á sjúkrahús snemma í morgun í hafnarborginni Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu. 

Gluggar eyðilögðust í skothríð á krabbameinsdeild sjúkrahússins þar sem sjúklingar hljóta geislameðferð og skemmdir urðu á innviðum deildarinnar. 

Fram kemur á AFP að sjúklingar og starfsmenn hafi haldið til í kjallara sjúkrahússins á meðan árásin hafi staðið yfir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert