Bandarískur blaðamaður skotinn til bana í Úkraínu

Úkraínskur hermaður í Irpin sem heldur á vopni til að …
Úkraínskur hermaður í Irpin sem heldur á vopni til að granda skriðdrekum. AFP

Bandarískur blaðamaður var skotinn til bana og annar særðist í úkraínska bænum Irpin í grennd við höfuðborgina Kænugarð í dag.

Danyolo Shapavalov, skurðlæknir sem sinnir sjálfboðastörfum í Úkraínu, sagði að Bandaríkjamaðurinn hafi látist samstundis og að hann hafi gert að sárum hins mannsins.

Fram kemur á Twitter að blaðamaður New York Times, Brent Renaud, hafi verið sá sem lést.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert