Níu fórust í loftárás á Mykolaiv

Frá borginni Mykolaiv.
Frá borginni Mykolaiv. AFP

Níu fórust í loftárás Rússa á borgina Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu, skammt frá hafnarborginni Odessa við Svartahafið.

Ríkisstjórinn Vitalí Kim, greindi frá þessu á Telegram.

„Úrþvætti!!!!! 9 manns látnir eftir sprengingar frá fávitum. Mykolaiv,“ skrifaði Kim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert