Loftvarnarflaugar, drónar, brynvarin ökutæki, flutningabifreiðar og njósnatengdur búnaður eru efst á þeim óskalista sem rússnesk stjórnvöld hafa sent Kína, ef marka má heimildir Financial Times.
Þá hafa Rússar einnig óskað eftir sérstökum matarpökkum fyrir herlið sitt. Í umfjöllun CNN kemur fram að líklegra sé að Kína verði við þeirri ósk, enda takist þeim þá áfram að sigla milli skers og báru með því að veita Rússum aðstoð, en þó ekki útvega þeim hrein og klár vopn.
Yfirvöld í Kína hafa sýnt fram á vilja til að rétta Rússum hjálparhönd, eins og Rússar óskuðu eftir, vegna innrásarinnar í Úkraínu.
Ekki liggur fyrir hvort Kína sé nú þegar byrjað að veita Rússlandi umræddan stuðning eða hvort í þessu felist loforð um að hann verði veittur í náinni framtíð.
Æðstu menn Kommúnistaflokksins í Kína eru ekki á eitt sammála um það hvernig sé best að snúa sér í málinu. Harðar viðskiptaþvinganir vestrænna ríkja og samstaða aðildaríkja Atlantshafsbandalagsins hafa dregið úr lyst Xi Jinping, forseta Kína, á því að standa með Pútín, enda reiðir Kína sig enn talsvert á vestræn viðskipti.
Á alþjóðlegum vettvangi kefur Kína viljað halda hlutlausri stöðu að nafninu til. Þannig hafa stjórnvöld ekki fordæmt aðgerðir Rússa eða tekið þátt í efnahagsþvingunum gegn þeim, en heldur ekki lýst yfir stuðningi við innrásina í Úkraínu.