Mikill eldur í einum stærsta markaði heims

Reyk leggur upp frá markaðinum Barabashovo í Karkív, en hann …
Reyk leggur upp frá markaðinum Barabashovo í Karkív, en hann er einn stærsti markaður Evrópu og heims. AFP/Sergey BOBOK

Gríðarmikill eldur kom upp í einum stærsta markaði í Evrópu og jafnframt í heiminum eftir sprengjuárásir Rússa á borgina Karkív í austurhluta Úkraínu í gær.

Markaðurinn, sem heitir Barabashova og er að stórum hluta götumarkaður, nær yfir 300 þúsund fermetra svæði. Var þetta fjölmennasti vinnustaður borgarinnar, en nokkrir tugir þúsunda störfuðu í nokkur þúsund verslunum á svæðinu. Markaðurinn hafði verið lokaður frá því að innrás Rússa hófs.

Bréfritari sem hefur sent mbl.is daglegar dagbókafærslur síðustu viku um ástandið í Karkív lýsti því svo að mikinn svartan reyk hefði lagt til himins og að samkvæmt fréttum sem þau heyrðu tækist illa að takast á við eldinn vegna frekari stórskotaliðsárása á borgina. Þá sýna myndskeið sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum og fréttaveitum mikið umfang brunans og nær hann yfir fjölmargar húsaraðir og hefur teygt sig í nærliggjandi hús.

Lesia Vasílenko, úkraínsk þingkona bendir á að Rússar hafi nú eyðilagt bæði Barbashov og verslunarmiðstöðina Lavina í Kænugarði. Segir hún eins og Rússar séu að reyna að eyðileggja verslanir til að ná sér niður eftir að erlendar verslunarkeðjur stöðvuðu starfsemi sína í Rússlandi eftir að innrásin hófst.

Karkív hefur verið ein þeirra borga í Úkraínu sem hafa orðið hvað verst úti vegna árásar Rússa, en þeir hafa setið um borgina næstum frá upphafi innrásarinnar. Sagði borgarstjóri borgarinnar fyrr í vikunni að yfir 600 hús væru eyðilögð eftir árásirnar. Fyrir innrásina voru íbúar borgarinnar yfir 1,5 milljónir, en fyrr í mánuðinum sagði borgarstjórinn að aðeins væru eftir tæplega hálf milljón. Aðrir hefðu flúið.

Eldurinn nær yfir gríðarlega mikið svæði.
Eldurinn nær yfir gríðarlega mikið svæði. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert