Volodimír Selesnkí Úkraínuforseti kallaði eftir nýjum friðarviðræðum í nótt eftir að Rússar tilkynntu að þeir væru komnir inn í hafnarborgina Mariupol.
„Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala, tími til að endurheimta landyfirráð og réttlæti fyrir Úkraínu,“ sagði Selenskí í ávarpi á Facebook.
„Annars verður tjón Rússa slíkt, að nokkrar kynslóðir munu ekki jafna sig af átökunum.“
Að sögn talsmanna varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna er sókn Rússa í Úkraínu að mestu leyti stöðnuð. Rússneski herinn er um 30 kílómetra austur af Kænugarði og mætir mikilli mótspyrnu.
Þá telja Bandaríkjamenn að rússneski herinn hafi ekki komist lengra inn í borgina Karkív í austurhluta landsins, sem þeir hafa umkringt. Þá standast varnir Úkraínumanna einnig Tsérnihív í norðri.
Varnarmálaráðuneyti Bretlands telur að Rússar eigi í erfiðleikum með að útvega hermönnum sínum helstu nauðsynjar svo sem mat og eldsneyti vegna árása Úkraínumanna á leiðir sem Rússar nota til birgðasendinga.
Rússar tilkynntu hins vegar í gær að þeir hefðu náð yfirráðum í Mariupol.
„Hersveitir alþýðulýðveldisins Donetsk, með stuðningi rússneska hersins, berjast nú í miðborg Mariupol gegn þjóðernissinnum,“ sagði í yfirlýsingu rússneska varnarmálaráðuneytisins.
Borgarstjóri borgarinnar hefur staðfest að barist er í miðborginni.