Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði í yfirlýsingu að Kinzhal-flugskeyti hefðu verið notaðar í fyrsta skipti í dag til þess að eyðileggja vopnabúr Úkraínumanna í vesturhluta landsins.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir flugskeytið vera „hið fullkomna vopn“ þar sem það getur flogið á tíföldum hljóðhraða og getur sigrast á loftvarnarkerfum.
Pútín kynnti Kinzhal-flugskeytið fyrst árið 2018 í ávarpi sem nýjung í vopnabúri þjóðarinnar.