Frönsk yfirvöld hafa fryst eignir upp á 850 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 121 milljarðs íslenskra króna, sem eru í eigu rússneskra auðjöfra í landinu.
Frá þessu greindi Bruno Le Maire, fjármálaráðherra Frakklands, í dag.
„Við höfum fryst eignir upp á 150 milljón evrur,“ sagði Le Maire í samtali við sjónvarpsstöð í Frakklandi.
Auk þess höfum við „fryst 539 milljón evrur í 390 fasteignum á frönsku yfirráðasvæði og kyrrsett tvær snekkjur sem eru virði 150 milljón evra,“ bætti hann við.
„Samtals eru þetta eignir upp á 850 milljón evrur sem við höfum fryst á franskri grundu.“
Aðgerðir Frakka þýða að rússnesku auðjöfrarnir geta hvorki selt né aflað tekna af eignum sínum í Frakklandi.
Eignirnar hafi þó ekki verið frystar til þess að franska ríkið gæti eignast þær og selt síðan áfram, að sögn Le Maire.
„Refsiaðgerðirnar bitna harkalega á Rússlandi, rússneska ríkinu og Vladimír Pútín,“ sagði Le Maire.