Að sögn rússnesk fjölmiðils sem er hallur undir stjórnvöld hafa nærri tíu þúsund rússneskir hermenn látist í stríðinu í Úkraínu og rúmlega 16 þúsund eru særðir.
Fréttin birtist á vef rússneska miðilsins Komsomolskaya Pravda (KP) en var tekinn út stuttu síðar, bæði BBC og The Guardian höfðu þó tekið skjáskot af fréttinni.
Samkvæmt opinberum tölum rússneska varnarmálaráðuneytisins hafa 498 rússneskir hermenn látist frá 2. mars.
Í viðtali við BBC sagði ritstjóri KP að tölvukerfi fjölmiðilsins hafi verið hakkað.
Komsomolskaya Pravda, the pro-Kremlin tabloid, says that according to Russian ministry of defense numbers, 9,861 Russian soldiers died in Ukraine and 16,153 were injured. The last official Russian KIA figure, on March 2, was 498. Fascinating that someone posted the leaked number. pic.twitter.com/LHrBWIQ49z
— Yaroslav Trofimov (@yarotrof) March 21, 2022
I couldn't believe this was not a faked screenshot, but indeed, it's not. https://t.co/APYgX7gfUn
— Christo Grozev (@christogrozev) March 21, 2022