Viðskiptabann á olíu hefði áhrif á alla

Dmitrí Peskov.
Dmitrí Peskov. AFP

Viðskiptabann á olíu frá Rússlandi, sem sum Evrópuríki hafa hvatt til, vegna innrásarinnar í Úkraínu myndi hafa bein áhrif á alla.

Dmitrí Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, sagði blaðamönnum að olíubann „er ákvörðun sem mun skella á öllum“.

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins hittust í morgun til að ræða auknar refsiaðgerðir gegn Rússlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert