Rússneskur dómstóll hefur dæmt stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní í níu ára fangelsi.
Fyrr í morgun var Navalní fundinn sekur um fjárdrátt.
Navalní, sem hefur gagnrýnt Vladimír Pútín Rússlandsforseta harðlega, var fangelsaður á síðasta ári og hlaut tveggja og hálfs árs dóm vegna gamalla ásakana um fjársvik eftir að hann lifði af eiturárás sem hann sakar rússnesk stjórnvöld um að hafa staðið á bak við.
Ekki er ljóst sem stendur hvort tveggja og hálfs árs dómurinn er innifalinn í níu ára dóminum.