Brúðuleikhússtjóra bjargað úr klóm Rússa

Rússneskir hermenn rændu leikhússtjóranum í gær.
Rússneskir hermenn rændu leikhússtjóranum í gær. AFP/Ben Stansall

Viktor Havríljúk, leikhússtjóra akademíska brúðuleikhúsinu í Kerson, hefur verið bjargað úr klóm rússneskra hermanna.

Havríljúk var á mánudag rænt af rússneskum hermönnum en hann er nú í öruggum höndum.

Í tísti úkraínska þingsins segir að hann sé nú heill á húfi og að honum verði komið undir læknishendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert