Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, halda áfram að ræða málin með reglulegu millibili.
Í tilkynningu frá Kreml kemur fram að þeir hafi rætt saman í dag. Segir þar að Pútín hafi tjáð Macron að þjóðernissinnar í Maríupol verði að leggja niður vopn til að hægt sé að takast á við ástandið í borginni og auðvelda hjálparstarf.
„Fram kom að til að laga megi ástandið í borginni hvað varðar mannúðarmálin þurfi úkraínskir þjóðernissinnar að hætta mótspyrnu og leggja niður vopn,“ segir í tilkynningunni.