Lyfið ivermektín, sem ætlað er til meðhöndlunar á sníkjudýrasýkingum, hefur ekki sýnt merki um gagnsemi til meðhöndlunar á Covid-19 sjúkdómnum. Þetta staðfesta niðurstöður umfangsmikillar klínískrar rannsóknar sem birtust á miðvikudaginn.
New York Times greinir frá.
Í rannsókninni, sem ríflega 1.300 manns voru hluti af, fengu þátttakendur sem allir höfðu sýkst af kórónuveirunni annars vegar ivermektín og hins vegar lyfleysu til meðhöndlunar á Covid-19 sjúkdómnum. Engin merki um ávinning lyfsins voru sjáanleg.
Lyfið ivermektín hefur verið notað í marga áratugi við sníkjudýrasýkingum. Í upphafi faraldurs þegar sérfræðingar voru að athuga virkni margra lyfja við kórónuveirusýkingu, virtust einhverjar rannsóknir benda til þess að ivermektín gæti haft hamlandi áhrif á Covid-19 sjúkdóminn.
Gagnrýnendur bentu á að mögulega væri merki um virkni sjáanleg þar sem tilraunir væru gerðar á lyfinu við styrkleika sem væri langt umfram það sem væri öruggt fyrir fólk að innbyrða. Þrátt fyrir það hafa læknar verið að ávísa ivermektín til skjólstæðinga sinna og fer það gegn tilmælum Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA).
Í skriflegu svari Lyfjastofnunar við fyrirspurn mbl.is fyrr á þessu ári, kemur fram að ekki ætti að taka ivermektín sem forvörn eða til meðferðar við Covid-19-sjúkdómi, nema í þeim tilfellum þar sem læknar hafa ávísað viðkomandi lyfi og uppruni þess sé í samræmi við lög og reglur.
Segir þar jafnframt að öllum lyfjum geti fylgt aukaverkanir, líka ivermektín. Líkur á skaða geti einnig aukist sé lyf ekki tekið samkvæmt fyrirmælum læknis.
Þegar kórónuveirufaraldurinn hófst fjölgaði undanþáguávísunum lyfja sem innihalda ivermektín töluvert hér á landi.
Árið 2020 bárust tvöfalt fleiri undanþáguávísanir lyfja sem innihalda ivermektín fyrir menn en árið þar á undan. Undanþáguávísanirnar voru alls 30. Þar af voru 29 við þekktri ábendingu og ein við Covid-19 þar sem læknir ávísar á sjálfan sig og voru þær allar samþykktar.