Tilkynnt um nauðgun 25 kvenna í Bútsja

Bærinn Bútsja er rústir einar eftir árásir Rússa.
Bærinn Bútsja er rústir einar eftir árásir Rússa. AFP/Genya SAVILOV

Alls hafa 25 úkraínskar konur og stúlkur greint frá því að rússneskir hermann hafi nauðgað þeim í bænum Bútsja, skammt norðan við Kænugarð.

Þetta kom fram í máli Lyudmilu Den­isovu, yf­ir­manns mann­rétt­inda­mála í Úkraínu, þar sem hún ræddi við BBC.

Denisova sagði að 25 símtöl hefðu borist hjálparlínu og að konurnar væru á aldrinum 14 til 24 ára.

Hún sagði að Úkraínumenn hefðu sönnunargögn þess efnis að Rússar hefðu framið þjóðarmorð og að nauðgun væri „nýtt vopn“ sem rússneskar hersveitir beittu.

Denisova sagði að áfram yrði fylgst með þessum hræðilegu málum og að öllum glæpamönnum yrði refsað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert