Tala látinna fer hækkandi

Tala látinna fer hækkandi. Að minnsta kosti fjögur börn létu …
Tala látinna fer hækkandi. Að minnsta kosti fjögur börn létu lífið í árásinni. AFP

Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir að tveim eldflaugum var skotið á lestarstöð í Kramatorsk. Á meðal þeirra sem létust eru að minnsta kosti fjögur börn. Saksóknarar í Donetsk-héraði segja að um 4.000 óbreyttir borgarar hafi verið staddir á lestarstöðinni þegar árásin átti sér stað.

„Ég sá fólk útatað í blóði koma inn í lestarstöðina og fólk út um allt á jörðinni. Ég veit ekki ef þau voru bara slösuð eða dauð,“ sagði kona sem stödd var í stöðinni þegar árásin átti sér stað í viðtali við AFP.

Í vikunni hefur Kramatorsk orðið fyrir árásum Rússa, þó ekki af þeim mælikvarða sem aðrar borgir í austurhluta Úkraínu hafa orðið fyrir frá því að innrás Rússa hófst.

Rússar neita aðild

Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur alfarið neitað aðild Rússlands að árásinni og sakaði úkraínska þjóðernissinna um að hafa skotið eldflaugunum á lestarstöðina.

„Tilgangur árásar þjóðernissinna á lestarstöðina í Kramatorsk var að trufla flótta almennra borgara úr borginni til að nota þá sem „mennskan skjöld“ til að verja stöðu úkraínska hersins“, sagði ráðuneytið í yfirlýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert