Alls hafa 1.222 lík fundist á svæðinu í kringum Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, til þessa.
Iryna Venediktova, ríkissaksóknari Úkraínu, greindi frá þessu.
„Staðan núna í morgun er þannig að 1.222 lík hafa fundist eingöngu á Kænugarðs-svæðinu," sagði Venediktova í viðtali við Sky News.
Úkraínumenn hafa áður greint frá því að töluvert af líkum almennra borgara hafi fundist í bæjum fyrir utan Kænugarð þangað sem rússneskar hersveitir hörfuðu. Þeir saka Rússa um stríðsglæpi.