Munu berjast til endaloka í Maríupol

Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu, segir að úkraínskir hermenn muni berjast til endaloka í hafnarborginni Maríupol.

Að sögn Shmyhal hefur borgin ekki fallið í hendur Rússa þrátt fyrir afarkost um uppgjöf úkraínskra hermanna. 

Á vef BBC er greint frá því að Volodimír Seleskí, for­seti Úkraínu, hafi ekki hyggju að gefa neitt landsvæði í austurhluta landsins til Rússa. 

Á síðustu vikum hafa Rússar meðal annars einblínt á það svæði. 

Rússneskir hermenn í Maríupol.
Rússneskir hermenn í Maríupol. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert