Bíða þarf með fólksflutninga frá úkraínskum borgum og bæjum, sem eru í fremstu víglínu í austurhluta landsins, annan daginn í röð en samkvæmt úkraínskum yfirvöldum hafa rússneskar hersveitir verið að hindra för Úkraínumanna um flóttaleiðir og sprengt þær.
„Því miður verða engar flóttaleiðir í dag, 18. apríl,“ sagði varaforsætisráðherra Úkraínu, Írína Veresjúk, í tilkynningu.
„Í bága við alþjóðalög um mannréttindi hafa rússnesku hernámsmennirnir ekki hætt að hindra og sprengja flóttaleiðirnar,“ bætti hún við.
Yfirvöld í Kænugarði hafa oftar en einusinni þurft að fresta fólksflutningum frá borginni en aldrei hefur flóttaleiðum verið lokað jafn lengi eins og nú.
Úkraínsk yfirvöld hafa hvatt fólk í Donbas-héraðinu, þar sem Rússar eru sagðir undirbúa stórsókn, að yfirgefa heimili sín og flýja til vesturhluta landsins.
Að sögn Veresjúk hafa langar og erfiðar samningaviðræður átt sér stað við Rússa um nokkrar flóttaleiðir, sérstaklega frá hafnarborginni Maríupol.