Skotið á Lvív

Frá árás sem gerð var á borgina í mars.
Frá árás sem gerð var á borgina í mars. AFP/Marion Payet

Fimm öflugum loftskeytum var skotið á Lvív í vesturhluta Úkraínu í morgun. Frá því að innrás Rússa hófst í lok febrúar hefur borginni hefur hlíft við stórum árásum að mestu leyti. 

Uppfært 08:13:
Yfirvöld í Lvív hafa staðfest að a.m.k. átta særðust í árásinni og sex dóu. Eitt barn var á meðal fórnarlambanna.

Þykkur reykmökkur steig upp fyrir ofan íbúðahverfi í borginni en samkvæmt Andrí Sadoví, borgarstjóra Lvív, eru viðbragðsaðilar mættir á vettvang.

Árásir á Lvív eru nú gerðar samhliða því að árásir í kringum Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, hafa aukist. Hafa verksmiðjur sem framleiða hernaðargögn meðal annars orðið fyrir loftskeytum á síðustu dögum.

Skemmdir á innviðum

„Fimm öflugum loftskeytum var skotið á sama tíma á borgaralega innviði í gömlu evrópsku borginni Lvív. Rússar halda áfram að gera villimannslegar árásir á úkraínskar borgir úr lofti, “ skrifaði Mikaílo Podolí­ak, aðstoðarmaður forseta Úkraínu, á Twitter. 

Alexander Kamisjín, yfirmaður lestarsamganga í Úkraínu, hefur staðfest að skemmdir hafi orðið á hluta af innviðum sem munu valda einhverjum töfum, hún væri þó minniháttar. Enginn særðist þó, hvorki farþegar né starfsfólk.

Ráðist á borgina í mars

Lvív sem staðsett er í vesturhluta Úkraínu, nálægt pólsku landamærunum, hefur orðið athvarf fyrir flóttafólk og í upphafi stríðsins voru nokkur vestræn sendiráð flutt þangað frá Kænugarði.

Seint í mars var loftskeytum skotið á Lvív og var skotunum beint að eldsneytisbirgðastöð. Þá slösuðust fimm manns.

Þann 13. mars dóu að minnsta kosti 35 manns og 134 særðust þegar skotið var á herstöð um 40 kílómetra norðvestur af Lvív.

18. mars voru síðan sprengjuárásir á verksmiðju nálægt flugvellinum. Enginn særðist þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert