Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að stórsókn Rússa í Donbas-héruðunum sé hafin.
„Við getum nú staðfest að rússneskir hermenn hafa hafið orrustu í Donbas, sem þeir hafa undirbúið í langan tíma. Stór hluti rússneska hersins er nú að einblína á þessa sókn,“ sagði Selenskí á Telegram.
„Sama hversu margir rússneskir hermenn eru hér, munum við berjast. Við munum verja okkur.“
Úkraínsk yfirvöld hafa hvatt íbúa til að yfirgefa Donbas-héruðin og fara vestur til að flýja umfangsmikla sókn Rússa.
Sergiy Gaiday, héraðsstjóri í Luhansk, greindi frá því fyrr í dag að sóknin væri hafin.
„Þetta er helvíti. Sóknin er hafin, sem þeir hafa talað um í margar vikur,“ sagði Gaiday á Facebook.
Að minnsta kosti átta almennir borgarar hafa látist í austurhluta landsins í dag. Að sögn Gaiday létust fjórir er þeir reyndu að flýja borgina Kreminna í Luhansk.