Johnson baðst afsökunar á að hafa brotið lög

Boris Johnson á þingi í dag.
Boris Johnson á þingi í dag. AFP

Bor­is John­son, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, hef­ur beðið þing­menn breska þings­ins af­sök­un­ar fyr­ir að hafa brotið eig­in lög um sam­komutak­mark­an­ir.

John­son baðst af­sök­un­ar er þing kom sam­an í dag en hann ít­rekaði að hann teldi sig ekki hafa gert neitt rangt með því að vera viðstadd­ur veislu á af­mæl­inu hans í júní 2020.

„Þetta voru mín mis­tök og ég biðst af­sök­un­ar á því fyr­ir­vara­laust. Breska þjóðin hef­ur rétt á að bú­ast við meiru af for­sæt­is­ráðherr­an­um þeirra,“ sagði John­son.

Van­traust­stil­laga send

And­stæðing­ar John­sons á þing­inu hafa sakað hann um lyg­ar, þar sem hann hef­ur áður haldið því fram að eng­in lög hafi verið brot­in.

Á fimmtu­dag­inn verður hald­in sér­stök umræða um hvort John­son hafi af­vega­leitt þingið.

John­son sjálf­ur verður hins veg­ar á Indlandi þá.

Hann var þó spurður að því í dag hvort hann hafi logið að þing­inu og svaraði John­son neit­andi. 

Mark Harper, þingmaður Íhalds­flokks­ins, greindi frá því á Twitter í dag að hann hafi sent van­traust­stil­lögu á hend­ur for­sæt­is­ráðherr­an­um til hinn­ar svo­nefndu 1922-nefnd­ar, sem sam­an­stend­ur af al­menn­um þing­mönn­um Íhalds­flokks­ins.

54 slík van­trausts­bréf þurfa að ber­ast til nefnd­ar­inn­ar til þess að knýja fram leiðtoga­kjör í flokkn­um, en ekki er sagt frá því hversu mörg bréf hafi borist til nefnd­ar­inn­ar fyrr en þeim fjölda er náð. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert