Borgaryfirvöld í kínversku stórborginni Shanghai greindu frá því að 39 hefðu látist þar af völdum Covid-19 í gær. Er það mesti fjöldi andláta síðan gripið var til útgöngubanns í byrjun apríl vegna útbreiðslu veirunnar.
Kínverjar tóku til þess ráðs að setja útgöngubann í borginni þar sem 25 milljónir manns búa vegna met fjölda smita en óttast er að útbreiðslan sé að aukast til muna þrátt fyrir útgöngubannið.
Kínverjar hafa haldið sig við núllstefnu í baráttunni við veiruna, ólíkt flestum öðrum löndum, með ströngu útgöngubanni. Sú leið virðist lítið ganga í baráttunni við Ómikron-afbrigði veirunnar og er þolinmæði margra íbúa löngu á þrotum.
Vestrænir sérfræðingar hafa lýst efasemdum með áreiðanleika Covid-tölfræðinnar í Kína, sér í lagi með tilkomu Ómikron-afbrigiðins og telja smit og andlát mun fleiri en opinberar tölur segja til um.
Margir upplifa matarskort í borginni, vegna skerts aðgengis að mat og dæmi er um að fólk hafi greitt 400 yuan, eða um átta þúsund íslenskar krónur, fyrir pakka af núðlum og eina gosflösku.
Útgöngubannið þýðir að flestir þurfa að fá sendan mat og vatn með heimsendingarþjónustu en ríkið útvegar þannig grænmeti, kjöt og egg.