Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur fjallað um að draga úr rétti kvenna til þungunarrofs, samkvæmt gögnum sem lekið var til fjölmiðla og hafa valdið töluverðum usla vestanhafs.
Í gögnunum, sem birtust á vef Politico, fjallar meirihluta dómara um tímamótadóminn Roe gegn Wade frá árinu 1973 en hann kvað á um það að þungunarrof stæðist stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Hæstaréttardómararnir telja hins vegar að dómarar hafi komist að rangri niðurstöðu í því máli.
Meirihluti hæstaréttardómaranna rökstyður á 98 blaðsíðum hvernig þau telja dóminn Roe gegn Wade rangan og leggja til að hann verði ógildur.
Samkvæmt niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna frá 22. janúar 1973 eiga konur rétt á að láta eyða fóstri þar til það hefur náð þeim þroska að geta lifað sjálfstæðu lífi utan líkama konunnar en það er áfangi sem fóstur ná yfirleitt á 22.-24. viku.
Úrskurðurinn er enn gífurlega umdeildur í Bandaríkjunum og margoft hefur verið reynt að fá honum hnekkt eða þá að fá hæstarétt til þess að þrengja túlkun sína.
Fari það svo að Roe gegn Wade dómurinn verði ógildur, eins og meirihluti hæstaréttardómaranna leggur til í áliti sínu, yrði réttur til þungunarrofs ekki lengur varinn í stjórnarskrá Bandaríkjanna, heldur yrði málaflokkurinn í höndum einstakra ríkja.
Réttur til þungunarrofs hefur átt undir högg að sækja í Bandaríkjunum síðustu misseri og hafa mörg ríki viljað setja strangar reglur sem gerir konum erfiðara að fara í þungunarrof.
Demókratarnir Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, og Chuck Schumer, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, segja í sameiginlegri yfirlýsingu að ef fregnirnar séu sannar sé um að ræða mestu skerðingu á réttindum síðastliðin 50 ár.
Enn fremur kom fram að ákvörðun dómaranna, sem flestir eru repúblikanar, sé viðurstyggð. Um eina hættulegustu og skaðlegustu ákvörðun nútímasögunnar sé að ræða.
Fljótlega eftir að gögnin voru birt var hæstaréttarbyggingin í Washington girt af þar sem fjöldi mótmælenda kom saman.