Ísraelskar öryggissveitir hafa handtekið tvo Palestínumenn sem eru grunaðir um að hafa drepið þrjá Ísraelsmenn með exi.
Leit hafði staðið yfir að mönnunum í rúma tvo sólarhringa.
Mennirnir, sem eru 19 og 20 ára, sáust á ferli rétt fyrir utan borgina Elad þar sem árásin átti sér stað og voru í kjölfarið handteknir.
Árásin í Elad, þar sem strangtrúaðir gyðingar eru í meirihluta, var sú sjötta í garð Ísraelsmanna síðan 22. mars.
Að sögn vitna stukku árásarmennirnir út úr bíl með axir á lofti og réðust á fólk. Þrír létust og fjórir særðust. Mennirnir óku síðan á brott í bílnum.