Yfirvöld í Peking, höfuðborg Kína, voru lítt ánægð með ummæli Joe Bidens Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin myndu hjálpa taívanska hernum að verjast ef Kínverjar réðust á eyjuna. Að sögn talsmann kínverska utanríkisráðuneytisins eru Kínverjar reiðubúnir að verja þjóðarhagsmuni sína gagnvart Taívan.
Biden lét ummælin falla í morgun þegar hann var að ræða refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. Sagði hann Rússa þurfa að borga fyrir það í langan tíma. Tók hann m.a. fram að ekki væri skynsamlegt fyrir Vesturlönd að draga úr refsiaðgerðum gegn Rússum því kínversk stjórnvöld væru að fylgjast með.
„Hvaða skilaboð myndi það senda Kína um kostnaðinn við að gera tilraun til að hertaka Taívan?“ spurði Biden þá.
Ummælin féllu ekki í kramið hjá yfirvöldum í Peking en talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði að enginn ætti að vanmeta vilja og getu kínversku þjóðarinnar til að verja fullveldi þjóðarinnar og landhelgi.