Sala á skotheldum skólatöskum og bakpokum í Bandaríkjunum rauk upp í vikunni eftir skotárásina á grunnskólann í Uvalde í Texas í Bandaríkjunum þar sem nítján börn létu lífið. Fréttastofa Insider greindi frá þessu.
Yasir Sheik, framkvæmdarstjóri Guard Dog Security sem selur sjálfsvarnar vörur í Bandaríkjunum eins og piparúða og rafmagnsbyssur, sagði í samtali við fréttastofu Insider að mikil aukning hafi átt sér stað í kaupum á skotheldum skólatöskum.
Að sögn hans er hægt að nota skólatöskunnar sem skjöld ef skotárás verður á skóla.
Skotheldu skólatöskunnar eru seldar víðs vegar um Bandaríkin í búðum sem eru mörgum kunnugar. Þar má nefna Home Depot, Lowe's og Dick's Sporting Goods.
Að sögn Carolina Ballesteros, markaðsstjóra MC Armor sem selur einnig skotheldar skólatöskur – en þar að auki skotheldar kennslutöflur og skotheldar hurðar fyrir kennslustofur, hafa þau einnig orðið var við mikla aukningu í sölu í kjölfar árásarinnar þriðjudaginn.
Í frétt spænsku fréttastofunnar Marca um málið kom fram að samkvæmt framkvæmdarstjóra Leatherback Gear, Mike De Geus, sem selur skothelda bakpoka hefur sala aukist um 800 prósent eftir skotárásina á grunnskólann í Uvalde.